Heilsuverndarstöðin verði sjúkrahótel

EITT af fullkomnum vandræðaverkum núverandi ríkisstjórnar og R-listans var að selja sérhannaða heilsustöð á besta stað til einkaaðila. Tveimur síðustu heilbrigðisráðherrunum fannst það nauðsynlegt og sá þeirra sem nú starfar telur kostina fleirri en gallana. Menn þurfa að hafa dulræna sálfræðiþekkingu til að skilja slíka speki. Við söluna fór starfsemi heilsugæslunnar á rándýran vergang. Heilsugæslan var um tíma eins og umkomulaus flækingur í konukotum án aðgangs að læknum og viðunandi húsnæði. Þarna vantaði samhæfingu hugar og handa, eins og oft vill verða þar sem margir ráða í skjóli flokka.

Ég hef lengi verið þeirar skoðunar að kjósa ætti um menn og málefni. Ekki flokka. Óhæfir þingmenn komast þá síður áfram og við sætum ekki uppi með svo marga þeirra. Ég hef aldrei verið svo úti að aka, að ég hafi kosið Framsókn eða Sjálfstæðisflokk og sjáanlegt að svo verður, nema elliglöp og veikindi komi til. Þegar ég tala um að kjósa einstaklinga er það samfara málefninu sem þeir standa fyrir. Ekki pólitík. Þau helstu sem vilja hag aldraðra og öryrkja betri og þora til dæmis að berjast gegn ofurgræðgi banka og verslunar eru Jóhanna Sigurðardóttir, Margrét Frímannsdóttir og Ásta R., Svandís Svavarsdóttir og Steingrímur Sigfússon. Magnúsi Þór gef ég plús fyrir að þora að koma málefnum innflytjenda upp á yfirborðið. Sumir hafa snúið því í andhverfu sína og voru framsóknarmenn ötulir við það til að leyna eigin smæð og klúðri. Þótt borgarstjórinn í Reykjavík sé í óvinaliði aldraðra, öryrkja og láglaunastétta er ekki þar með sagt að hann vinni gegn þessu fólki. Svo valdamiklir menn geta farið eigin leiðir og vona ég að hann geri það á jákvæðari hátt fyrir þessa hópa en fyrirrennarar hans. Formáli þessi er undanfari tillögu minnar til eigenda Heilsuverndarstöðvarinnar að þeir nýti sér sérhönnun hússins og geri það að sjúkrahóteli. Þar getur góðviljað og framsýnt fólk, með borgarstjórann í framlínu, sýnt hug sinn til sjúkra, aldraðra og öryrkja í verki. Húsið er friðað og því má engu breyta, en án þeirra yrði það ódrjúgt sem hefðbundið hótel. Sjúkrahótel þýddi að þar mætti vista fólk sem bíður eftir margvíslegum plássum og létta þannig miklu af spítulum. Þar gæti verið aðstaða fyrir Alzheimers-sjúklinga, sem létta mundi mörgum lífið. Hvíldarinnlagnir og langlegur geta verið í sama húsi. Möguleikarnir eru

margir, þar á meðal að viðbyggingin stæði sér vegna friðhelgi hússins og nýtist meðal annars sem venjulegt hótel í fræðilegum tengslum við sjúkrahótelið. Eða þá afmarkaður hluti af því. Allir mundu fara vel út úr þessu, ekki síst eigendurnir. Þetta er í það minnsta athugunar virði.

ALBERT JENSEN

trésmíðameistari,

Sléttuvegi 3, Reykjavík.

Frá Alberti Jensen:


Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband